Ásbjörn Óttarsson

Ásbjörn Óttarsson
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
2009 2013  Norðvestur  Sjálfstæðisfl.
Bæjarstjórnarmaður í Snæfellsbæ
frá til    flokkur
1998 2010  Sjálfstæðisfl.
Persónulegar upplýsingar
Fæddur16. nóvember 1962 (1962-11-16) (62 ára)
Reykjavík
StjórnmálaflokkurSjálfstæðisflokkurinn
MakiMargrét G. Scheving
Börn3
Æviágrip á vef Alþingis

Ásbjörn Óttarsson (fæddur 16. nóvember 1962) er fyrrverandi alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi frá 2009 til 2013 og forseti bæjarstjórnar Snæfellsbæjar.

Menntun

Ásbjörn lauk skipstjórnarprófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1983.[1]

Ólöglegar arðgreiðslur

Ásbjörn er framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Nesvers hf. og eini stjórnarmaður. Hinn 20. janúar 2010 upplýsti DV að Ásbjörn hefði greitt sér arð úr fyrirtæki sínu þrátt fyrir að það hefði skilað tapi á liðnu rekstrarári. Árið 2007 greiddi hann sér og sínum 20 milljónir króna í arð vegna rekstrarársins 2006, þrátt fyrir að á því ári hafi verið tap á rekstri fyrirtækisins. [2]

Slíkt er brot á lögum um hlutafélög nr. 2/1995, þar sem segir í 99. gr.: "Einungis er heimilt að úthluta sem arði hagnaði samkvæmt samþykktum ársreikningi síðasta reikningsárs, yfirfærðum hagnaði frá fyrri árum og frjálsum sjóðum eftir að dregið hefur verið frá tap sem ekki hefur verið jafnað og það fé sem samkvæmt lögum eða félagssamþykktum skal lagt í varasjóð eða til annarra þarfa."

Þegar upp komst um Ásbjörn endurgreiddi hann féð og í viðtali við Kastljósið 26. janúar það ár svaraði Ásbjörn fullyrðingu spyrilsins Helga Seljan um að hann hefði brotið lögin svo: „ég gerði það ekki viljandi.“ [3]

Naut Ásbjörn fulls stuðnings forystu Sjálfstæðisflokksins og sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hinn 27. janúar 2010: "Hann hefur játað á sig mistök og gert það sem hann getur til að bæta fyrir það sem var í ólagi. Þar með finnst mér að þetta eigi ekki að hafa áhrif á hans stöðu sem þingmanns eða vegna þeirra trúnaðarstarfa sem hann gegnir." [4]

Tilvísanir

Tenglar

  Þetta æviágrip er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.