Þessalía

Kort sem sýnir Þessalíu á Grikklandi.
Kort sem sýnir Þessalíu á Grikklandi.

Þessalía (gríska: Θεσσαλια) er eitt af þrettán héruðum Grikklands og skiptist í fjögur umdæmi. Höfuðstaður héraðsins er Larissa. Héraðið er í miðhluta landsins og á landamæri að Makedóníu í norðri, Epírus í vestri, Sterea Hellas eða Mið-Grikklandi í suðri og Eyjahafi í austri.

Umdæmi

  • Karditsa
  • Larissa
  • Magnesía
  • Tríkala