1283

Ár

1280 1281 128212831284 1285 1286

Áratugir

1271-12801281-12901291-1300

Aldir

12. öldin13. öldin14. öldin

Árið 1283 (MCCLXXXIII í rómverskum tölum)

Á Íslandi

  • Erlendur sterki Ólafsson varð lögmaður norðan og vestan.
  • Hrafn Oddsson kom til Íslands með konungsbréf um að allir þeir staðir, er ranglega væru teknir af leikmönnum og þeir og þeirra foreldrar hefðu á setið með réttri og löglegri hefð skyldu aftur hverfa undir forsjá leikmanna.

Fædd

Dáin

Erlendis

Játvarður 1. Englandskonungur.
  • 3. október - Játvarður 1. Englandskonungur lét í fyrsta skipti beita nýrri tegund líflátsaðferðar þar sem þeir sem dæmdir höfðu verið sekir um landráð voru dregnir, hengdir og hlutaðir sundur (dregnir á aftökustaðinn, hengdir þar til þeir voru nær kafnaðir og síðan hálshöggnir og líkið höggvið í fjóra hluta). Fyrsta fórnarlamb þessarar aðferðar var Dafydd ap Gruffydd, prins af Wales.
  • Mongólaveldið réðist á Kmeraveldið í Kambódíu.
  • Borgin Kiel fékk inngöngu í Hansasambandið.
  • Elsta skák- og leikjabók Evrópu, Libro de los juegos, samin á Spáni.
  • Filippus 3. Frakkakonungur bannar gyðingum búsetu í smáþorpum og sveitum Frakklands.

Fædd

Dáin