1368
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1368 (MCCCLXVIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
- 2. maí - Þorsteinn Eyjólfsson hirðstjóri var hertekinn af lýbskum kaupmönnum á heimleið frá Noregi og fluttur til Lübeck, þar sem hann sat í fangelsi til 29. júlí. Þá var honum sleppt, hann handtekinn aftur þegar hann kom til Skánar, hafður í varðhaldi um tíma og að lokum fluttur til Noregs.
Fædd
Dáin
- (sennilega) - Guðný Helgadóttir, abbadís í Reynistaðarklaustri.
Erlendis
- Tímúr komst til valda í Samarkand þar sem nú er Úsbekistan.
- Floti Hansasambandsins hóf herför gegn Valdimar atterdag Danakonungi og brenndi m.a. verslunarstaðinn og konungssetrið Ögvaldsnes á Körmt í Noregi. Valdimar neyddist til að flýja Danmörku og leita ásjár hjá keisaranum. Ófriðnum lauk með Stralsundsamningnum árið 1370.
- Hongvúkeisarinn stofnaði Mingveldið í Kína sem stóð til 1644.
- Vinna hófst við núverandi Kínamúr.
- Síðasti Grænlandsbiskupinn, Álfur biskup, var vígður í Görðum.
- Grænlandsknörrinn fórst svo að reglulegar siglingar til Grænlands frá Noregi lögðust af (samkvæmt öðrum heimildum var þetta 1368).
Fædd
- 14. febrúar - Sigmundur, keisari hins Heilaga rómverska keisaradæmis (d. 1437).
- 3. desember - Karl 6. Frakkakonungur (d. 1422).
- (sennilega) - Marteinn V páfi (d. 1431)
Dáin
- 7. október - Lionel af Antwerpen, hertogi af Clarence, sonur Játvarðar 3. Englandskonungs (f. 1338).
- Kasimír 3. Póllandskonungur (f. 1310).
- (sennilega) - Ibn Battuta, arabískur ferðalangur.