217

Árþúsund: 1. árþúsundið
Aldir:
Áratugir:
  • 191–200
  • 201–210
  • 211–220
  • 221–230
  • 231–240
Ár:

217 (CCXVII í rómverskum tölum) var 17. ár 3. aldar og hófst á miðvikudegi samkvæmt júlíanska tímatalinu. Í Rómaveldi var það þekkt sem ræðismannsár Praesens og Extricatusar eða sem 970 ab urbe condita. Það hefur verið þekkt sem árið 217 frá því snemma á miðöldum þegar Anno Domini-tímatalið, hið Kristna tímatal, var tekið upp í Evrópu.

Atburðir

  • 8. apríl - Caracalla var myrtur af hermönnum sínum við Edessa. Foringi Pretóríuvarðarins, Marcus Opellius Macrinus, lýsti sig keisara.
  • Julia Domna, móðir Caracalla, framdi sjálfsmorð þegar hún frétti lát sonar síns.
  • Sumarið - Orrustan við Nisibis: Macrinus var sigraður eftir þriggja daga orrustu við Parþa.
  • Artabanus 5., konungur Parþa, gerði friðarsamning við Rómaveldi og fékk 200 milljón sestertur í bætur fyrir stríðið í Parþíu.
  • Hringleikahúsið Colosseum eyðilagðist í eldi eftir að eldingu laust niður í það.
  • 20. desember - Kallixtus 1. var kjörinn páfi en Hippólýtus af Róm gerðist mótpáfi í andstöðu við hann.

Fædd

  • Fu Xuan, kínverskt skáld (d. 278).
  • Hua He, ráðherra í Wu (d. 279).
  • Jia Chong, herforingi Jin-veldisins (d. 282).
  • Wang Yuanji, eiginkona herforingjans Sima Zhao (d. 268).

Dáin

  • 8. apríl - Caracalla, Rómarkeisari (f. 188).
  • Sefýrínus páfi.
  • Chen Lin, ráðherra Hanveldisins.
  • Julia Domna, keisaraynja í Róm (f. 170).
  • Ling Tong, herforingi Sun Quan (f. 189).
  • Lu Su, ráðgjafi Sun Quan (f. 172).
  • Sima Lang, embættismaður Hanveldisins (f. 171).
  • Wang Can, kínverskt skáld og embættismaður Cao Wei (f. 177).