391

Árþúsund: 1. árþúsundið
Aldir:
Áratugir:
  • 371–380
  • 381–390
  • 391–400
  • 401–410
  • 411–420
Ár:

Árið 391 (CCCXCI í rómverskum tölum) var 91. ár 4. aldar og hófst á miðvikudegi samkvæm júlíska tímatalinu. Á þeim tíma var það þekkt innan Rómaveldis sem ræðismannsár Tatíanusar og Symmakusar eða 1144 ab urbe condita.

Atburðir

  • Þeódósíus 1. gerði kristni að ríkistrú í Rómaveldi. Öllum hofum annarra trúarbragða var lokað og eldurinn eilífi í Vestuhofinu í Róm var slökktur.
  • Þeófílus Alexandríupáfi lét fylgismenn sína eyðileggja öll heiðin hof í Alexandríu, þar á meðal Serapishofið sem var síðustu leifarnar af Múseion þar sem Bókasafnið í Alexandríu var áður.

Fædd

  • Aëtius, rómverskur herforingi (d. 454).

Dáin

  • Makaríos frá Egyptalandi, kristinn munkur.
  • Pétur af Sebaste, armenskur biskup.
  • Zhai Liao, stofnandi ríkisins Zhai Wei í Kína.