Agat
Agat eða glerhallur er röndótt steintegund.
Lýsing
Afbrigði af kalsedóni með mislitar rákir er fylgja útlínum holuveggjanna og þannig verða til sammiðja mynstur. Hvítt, grátt eða fölblátt.
- Efnasamsetning: SiO2
- Kristalgerð: dulkristallaður
- Harka: 7
- Eðlisþyngd: 2,57-2,65
- Kleyfni: engin
Útbreiðsla
Kemur fyrir sem holufylling í þóleiítbasalti. Finnst oft með kalsedóni og kvarsi.
Algengt er að matarprjónar séu gerðir úr agati.
Heimild
- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson, 1999, Íslenska Steinabókin, 2.prentun, ISBN 9979-3-1856-2