Alvar Aalto
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a4/Finlandia_A-Wiki.jpg/220px-Finlandia_A-Wiki.jpg)
Hugo Alvar Henrik Aalto (3. febrúar 1898 – 11. maí 1976) var arkitekt og húsgagnahönnuður frá Finnlandi sem teiknaði meðal annars Norræna húsið í Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Aalto fæddist í Kuortane í Finnlandi. Foreldrar hans voru Johan Henrik Aalto og Selly (Selma) Matilda (Hackstedt). Fjölskylda hans flutti til Alajärvi en þaðan fór hann til Jyväskylä.