Aukafall
Aukafall kallast öll föll önnur en nefnifall (í íslensku föllin þolfall, þágufall og eignarfall), og fara orð í aukaföll fylgi þau áhrifssögnum, forsetningum eða öðrum fallvöldum.
Til er ákveðin nefnifallssýki (sjá þágufallssýki) sem lýsir sér í því að aukaföll detta út; dæmi: „Við ætlum bara að fara í KB-banki.“
Dæmi
- Kysstu mig. (áhrifssögn + andlag í aukafalli (þolfalli))
- Þetta er frá mér til þín. (forsetning (frá og til) + andlag í aukafalli (þágufalli og eignarfalli))
- Bíll mannsins bilaði. (nafnorð + nafnorð í aukafalli (eignarfalli))
Tengill
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Wiktionary-logo-is.png/35px-Wiktionary-logo-is.png)
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu Aukafall.
![Linguistics stub.svg](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/34/M%C3%A1lv%C3%ADsinda_Stubbur.svg/40px-M%C3%A1lv%C3%ADsinda_Stubbur.svg.png)