Franz Liszt
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/f/ff/Liszt_1858.jpg/220px-Liszt_1858.jpg)
Franz Liszt (22. október 1811 – 31. júlí 1886) var ungverskt tónskáld, píanóleikari og píanókennari. Liszt var annálaður um alla Evrópu fyrir píanóleik sinn meðan hann lék opinberlega og líta margir á hann sem fremsta píanóleikara sögunnar. Hann hafði líka töluverð áhrif sem tónskáld, var rómaður píanókennari sem setti mark sitt á leiktækni píanóleikara um langa tíð og var auk þess velgjörðarmaður tónskálda, s.s. Hector Berlioz og Richard Wagner. Dóttir Liszt, Cosima, sem hann átti með Marie d'Agoult, varð eiginkona Wagners.
Tenglar
- Demko Miroslav: Franz Liszt compositeur Slovaque, L´Age d´Homme, Suisse, 2003.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/84/Oxygen480-apps-system-users.svg/30px-Oxygen480-apps-system-users.svg.png)