Gullkollur
Gullkollur | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Anthyllis vulneraria L. |
Gullkollur (fræðiheiti Anthyllis vulneraria) er jurt af ertublómaætt. Talið er að Gullkollur hafi verið fluttur til Íslands sem fóðurjurt í Selvog og þaðan breiðst út.
Lýsing
Hann er tví eða fjölær jurt með gul (sjaldan rauðgul eða rauð) blóm. Hann nær allt að 20 sm hæð. Hann er góð fóðurjurt fyrir skepnur en vegna smæðar hentar hann einkum til beitar.
Útbreiðsla
Gullkollur er útbreiddur í Evrópu, Litluasíu og Norður Afríku, á sólríkum stöðum í þurrum og kalkríkum jarðvegi. Á Íslandi er hann mestmegnis bundinn við suðvesturhornið og einkum nágrenni Selvogs.
Undirtegundir
Gullkollur er með nokkrar undirtegundir sem eru bundnar mismunandi hlutum útbreiðslusvæðisins:
- Íslenskur gullkollur(Anthyllis vulneraria ssp. borealis)
- Aðaltegundin (Anthyllis vulneraria ssp. carpathica)
- Danskur gullkollur (Anthyllis vulneraria ssp. danica)
- Finnskur gullkollur (Anthyllis vulneraria ssp. fennica)
- Laplands gullkollur (Anthyllis vulneraria ssp. lapponica)
- Rauðblóma gullkollur (Anthyllis vulneraria ssp. praepropera)
- Lítill gullkollur(Anthyllis vulneraria ssp. vulneraria)
Myndir
-
Blóm
-
Blóm
-
Laufblöð
-
Rauðblóma afbrigði
-
Planta
Heimildir
- Gullkollur (Flóra Íslands)
- Gullkollur (Náttúrufræðistofnun Íslands)[óvirkur tengill]
- Den virtuella floran
Tilvísanir
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Gullkollur.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/df/Wikispecies-logo.svg/34px-Wikispecies-logo.svg.png)
Wikilífverur eru með efni sem tengist Anthyllis_vulneraria.