Hervarar saga og Heiðreks
![Hervör sækir sverðið Tyrfing í haug föður síns.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/21/Christian-gottlieb-kratzenstein-stub-hervor-henter-sv%C3%A6rdet-hos-angartyr.jpg/220px-Christian-gottlieb-kratzenstein-stub-hervor-henter-sv%C3%A6rdet-hos-angartyr.jpg)
Hervarar saga og Heiðreks er ein af fornaldarsögum Norðurlanda. Sagan snýst um galdrasverðið Tyrfing og áhrif þess á þá sem það eignast. Helstu söguhetjurnar eru Hervör og sonur hennar Heiðrekur konungur.
Sagan inniheldur Gátur gestumblinda. Þar kemur Óðinn í dulargervi til Heiðreks konungs og takast þeir á í gátukeppni. Í lokagátunni er spurt hvað Óðinn hafi hvíslað að Baldri áður en lík hans var brennt. Þá áttar Heiðrekur sig á að þarna er Óðinn sjálfur kominn og heggur til hans en Óðinn bregður sér í valslíki og flaug á brott. Eftir þetta leggur Óðinn það á Heiðrek að hann muni verða drepinn af þrælum sínum og það gengur eftir.
Sagan hafði meðal annars mikil áhrif á skrif J. R. R. Tolkien.