Hljóðnemi
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/91/SennMicrophone.jpg/250px-SennMicrophone.jpg)
Hljóðnemi, oft kallaður míkrófónn, er tæki sem notað er til að taka upp hljóð með því að breyta því í rafmerki. Fyrsti hljóðneminn var smíðaður árið 1876 af Emile Berliner en hann var notaður í símtæki. Í dag eru hljóðnemar notaðir í mörgum ólíkum tækjum, meðal annars símum, segulbandstækjum, karaókítækjum, heyrnartækjum, labbrabbtækjum og tölvum.
Hljóðnemar breyta hljóði í rafmerki með spani, breytingum í rafrýmd eða þrýstirafmagni.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Hljóðnemum.