Indín er frumefni með efnatákniðIn og er númer 49 í lotukerfinu. Þessi sjaldgæfi, mjúki, þjáli og auðsambræðanlegi tregi málmur er efnafræðilega svipaður áli eða gallíni en lítur samt meira út eins og sink (þessi málmur finnst aðallega í sinkgrýti). Hann er einkum notaður til að mynda þunn smurningslög (í seinni heimsstyrjöldinni var hann mikið notaður til að þekja kúlulegur í afkastamiklar flugvélar).