Jóhann Karl 1.

Skjaldarmerki Búrbónaætt Konungur Spánar
Búrbónaætt
Jóhann Karl 1.
Jóhann Karl 1.
Ríkisár 22. nóvember 197519. júní 2014
SkírnarnafnJuan Carlos Alfonso Víctor María de Borbón y Borbón-Dos Sicilias
Fæddur5. janúar 1938 (1938-01-05) (86 ára)
 Róm, Ítalíu
Undirskrift
Konungsfjölskyldan
Faðir Don Juan, hertogi af Barselóna
Móðir Victoria Eugenie af Battenberg
DrottningSoffía Spánardrottning
BörnHelena, hertogaynjan af Lugo, Kristín, hertogaynjan af Palma, Mallorca, Felippus 6. Spánarkóngur

Jóhann Karl I (Juan Alfonso Carlos Víctor María de Borbón y Borbón-Dos Sicilias) (f. 1938) var konungur Spánar frá 1975 til 2014. Hann er sonur Don Juan de Borbón, sem var sonur Alfonsós XIII Spánarkonungs, og móðir Jóhanns var Maria Mercedes af Bourbon-Orleans.

Jóhann Karl varð konungur 1975 er hann tók við af Francisco Franco sem lést það ár. Hann steig af stóli þann 19. júní 2014 og sonur hans, Filippus 6. tók við krúnunni.

Þann 15. mars árið 2020 svipti Filippus konungur föður sinn öllum ellilífeyri og afsalaði sér öllum arfi frá honum. Þetta var gert vegna uppljóstrana um að Jóhann Karl hefði tekið við um 90 milljónum evra frá Sádi-Arabíu í gegnum aflandsreikninga.[1] Í ágúst 2020 fór Jóhann Karl í sjálfskipaða útlegð frá Spáni vegna hneykslisins.[2] Hann settist að í Sameinuðu arabísku furstadæmunum[3] en sneri heim til Spánar í maí árið 2022.[4]

Fjölskylda

Þann 14. maí 1962 giftist Jóhann Soffíu Grikklandsprinsessu en faðir hennar var konungur Grikklands. Þeim varð þriggja barna auðið og eiga samtals 8 barnabörn:

Börn þeirra eru:

  • Helena, hertogaynjan af Lugo (Elena María Isabel Dominica de los Silos de Borbón y de Grecia) (f. 1963). Árið 1995 giftist hún Jaime de Marichalar, hertoga af Lugo. Þau eiga tvö börn: Felipe Juan Froilán (f. 1998) Victoria Federica (f. 2000).
  • Kristín, hertogaynjan af Palma, Mallorca (Cristina Federica Victoria Antonia de la Santísima Trinidad de Borbón y de Grecia) (f. 1965). Árið 1997 giftist hún Iñaki Urdangarin, hertoga af Palma, Mallorca. Þau eiga fjögur börn: Juan Valentín (f. 1999), Pablo Nicolás (f. 2000), Miguel (f. 2002) og Irene (f. 2005)
  • Felippus 6. Spánarkóngur (Felipe Juan Pablo Alfonso de Todos los Santos de Borbón y de Grecia) (f. 1968). Árið 2004 giftist hann Letiziu Ortiz. Þau eiga tvær dætur: Leonor (f. 2005) og Sofia (f. 2007). Þann 19. júní varð hann konungur Spánar.

Tengill

Tilvísanir

  1. Andri Yrkill Valsson (15. mars 2020). „Hneykslismál innan spænsku konungsfjölskyldunnar“. RÚV. Sótt 17. mars 2020.
  2. Freyr Gígja Gunnarsson (3. ágúst 2020). „Fyrrverandi Spánarkonungur farinn í útlegð“. RÚV. Sótt 3. ágúst 2020.
  3. „Í út­legð í Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæmun­um“. mbl.is. 17. ágúst 2020. Sótt 24. ágúst 2020.
  4. Jóhann Hlíðar Harðarson (21. maí 2022). „Fyrrverandi Spánarkonungur snýr heim úr útlegð“. Vísir. Sótt 21. maí 2022.


Fyrirrennari:
Francisco Franco
(sem Caudillo)
Konungur Spánar
(22. nóvember 197519. júní 2014)
Eftirmaður:
Filippus 6.