Kendrick Lamar

Kendrick Lamar
Lamar í kjólskyrtu og með áberandi málmhálsmen og lítur til hægri og brosir.
Lamar á Pulitzer-verðlaununum árið 2018
Fæddur
Kendrick Lamar Duckworth

17. júní 1987 (1987-06-17) (37 ára)
Compton, Kaliforníu, Bandaríkjunum
Önnur nöfnK.Dot
Störf
  • Rappari
  • lagahöfundur
  • kvikmyndagerðarmaður
  • athafnamaður
Ár virkur2003–í dag
MakiWhitney Alford (trúl. 2015)
Börn2
Ættingjar
  • Baby Keem (frændi)
  • Nick Young (frændi)
Tónlistarferill
Stefnur
  • Vesturstrandar-hipphopp
  • framfararapp
  • djassrapp
  • félagslega pólitískt rapp
Útgefandi
Meðlimur íThe Little Homies
Áður meðlimur íBlack Hippy
Vefsíðaoklama.com

Kendrick Lamar Duckworth (f. 17. júní 1987) er bandarískur rappari og lagahöfundur. Hann er talinn einn áhrifamesti hipphopp-tónlistarmaður sinnar kynslóðar og oft talinn meðal bestu rappara nú um stundir. Hann er meðal annars þekktur fyrir tæknilega listsköpun sína og flókna lagasmíði. Hann hlaut Pulitzer-tónlistarverðlaunin árið 2018 og varð þar með fyrsti tónlistarmaðurinn utan klassísku og djasstónlistarinnar til að hljóta þau.

Lamar byrjaði að gefa út tónlist undir sviðsnafninu K.Dot á meðan hann var í menntaskóla. Hann skrifaði undir samning við Top Dawg Entertainment (TDE) árið 2005, þar sem hann var einn af stofnendum hipphoppsofurhljómsveitarinnar Black Hippy. Í kjölfar velgengni jaðarrappsfrumraunarplötu (e. alternative rap) sinnar Section.80 (2011) tryggði Lamar sér samning við yfirverktakana Aftermath Entertainment hans Dr. Dre og Interscope Records. Hann vakti mikla athygli með annarri plötu sinni Good Kid, M.A.A.D City (2012) sem var undir áhrifum frá bófarappi og varð hún sú hipphoppstúdíóplata sem lengst hefur verið á Billboard 200-vinsældalistanum; Rolling Stone útnefndi hana bestu þemaplötu allra tíma. Þriðja plata hans To Pimp a Butterfly (2015) blandaði hipphoppi saman við sögulegar blökkumannatónlistarstefnur í Bandaríkjunum á borð við djass, fönk og sálartónlist. Hún varð fyrsta af fimm plötum hans í röð sem komst í efsta sæti á Billboard 200-listanum og var ein af mest rómuðu plötum áratugarins 2010.

Árið 2015 komst Lamar á Billboard Hot 100-vinsældalistann í fyrsta sinn eftir að hafa komið fram á endurhljóðblönduðri útgáfu af „Bad Blood“ með Taylor Swift. Honum skaut upp á stjörnuhimininn með útgáfu fjórðu plötu hans Damn (2017) sem aðhylltist takti og trega og popptónlist og gat af sér annað lag hans sem komst í efsta sæti Hot 100, „Humble“. Hann setti saman plötu fyrir hljóðspor kvikmyndarinnar Black Panther árið 2018 og hlaut tilnefningu til Óskarsverðlauna fyrir besta frumsamda lagið „All the Stars“ (ásamt SZA), sem komst í efstu tíu sætin í Bandaríkjunum og Bretlandi. Tvöföld plata frá Lamar árið 2022, Mr. Morale & the Big Steppers, markaði lok dvalar hans hjá TDE og Aftermath. Rimma hans við Drake og sjötta plata hans, GNX (2024), gátu af sér lögin „Like That“, „Not Like Us“ og „Squabble Up“ sem öll slefuðu upp í efsta sæti Hot 100-vinsældalistans.

Lamar hefur hlotið ýmis verðalun á ferlinum, þar á meðal ein Primetime Emmy-verðlaun, ein Brit-verðlaun, fern American Music-verðlaun, sex Billboard Music-verðlaun, 11 MTV myndbandstónlistarverðlaun (þar á meðal tvö verðlaun fyrir myndband ársins), 22 Grammy-verðlaun (þriðja flestar Grammy-tilnefningar sem rappari hefur hlotið), og 29 BET Hip Hop verðlaun (flest sem listamaður hefur unnið). Time setti hann á lista yfir 100 áhrifamestu mönnum heims árið 2016. Tvær af tónleikaferðum hans, Damn Tour (2017–2018) og Big Steppers Tour (2022–2024), eru meðal tekjuhæstu tónleikaferða rappara sögunnar. Þrjú verka hans voru á lista Rolling Stone yfir 500 bestu plötur allra tíma árið 2020. Utan tónlistar stofnaði Lamar fyrirtækið PGLang og hóf kvikmyndagerð ásamt félaga sínum Dave Free.

Útgefið efni

Breiðskífur

  • Section.80 (2011)
  • Good Kid, M.A.A.D City (2012)
  • To Pimp a Butterfly (2015)
  • Damn (2017)
  • Mr. Morale & the Big Steppers (2022)
  • GNX (2024)

Heimild