Krímtataríska

Krímtataríska
Qırımtatarca, Qırımtatar tili
Къырымтатарджа, Къырымтатар тили
Málsvæði Úkraína, Tyrkland, Úsbekistan, Rúmenía, Rússland, Kirgistan, Búlgaría
Heimshluti Svartahaf
Fjöldi málhafa 480.000
Ætt Tyrkneskt
 Norðvesturtyrknest
  Krímtataríska
Tungumálakóðar
ISO 639-2 crh
ISO 639-3 crh
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode.

Krímtataríska (Qırımtatarca, Qırımtatar tili, Къырымтатарджа, Къырымтатар тили) er móðurmál Krímtatara. Hún er tyrkneskt tungumál talað á Krímskaga og af krímverskum útflytjendum í Úsbekistan, Tyrklandi, Rúmeníu og Búlgaríu, auk þess í litlum mæli í Bandaríkjunum og Kanada. Gæta skal þess að rugla henni ekki saman við sanna tatarísku, sem er töluð í Rússlandi og skylt krímtatarísku, þó tungumálin séu ekki gagnkvæmt skiljanleg. Krímtatarska er svipuð tyrknesku og er að nokkru leyti skiljanleg þeim sem tala það mál.

Í dag búa rúmlega 260.000 Krímtatarar á Krímskaga, og um það bil 150.000 manns eru í útlegð í Mið-Asíu (aðallega í Úsbekistan). Talið er að um 5 milljónir manns af krímverskum uppruna búi í Tyrklandi, en þeir eru afkomendur innflytjenda á 19. og 20. öldum. Af þessum 5 milljónum er áætlað að 2.000 manns tali krímtatarísku enn í dag. Smærri hópa Krímtatara er líka að finna í Rúmeníu (22.000 manns) og Búlgaríu (6.000 manns). Hún er eitt þeirra tungumála sem er í hvað mestri útrýmingarhættu í Evrópu.

Krímtatarísku má rita með annaðhvort latnesku eða kyrillísku stafrófi.

Krímtataríska
  Þessi tungumálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.