Mercedes-Benz CLS

Mercedes-Benz CLS
Framleiðandi Mercedes-Benz
FyrirtækiDaimler AG
Framleiðsluár2004
FramleiðslulandÞýskaland og Mexíkó
Flokkur4ra dyra stallbakur
GrunnurMercedes-Benz W219
Vél3,5 L V6
5,0 L V8 (272 /200 kW)
5,5 L V8 (382 /281 kW)
6,2 L V8 (514 /378 kW)
3,0 L V6 dísel (224 /167 kW)
Skipting7 gíra sjálfskipting
Hjólhaf2855 mm
Lengd4910 mm
Breidd1873 mm
Hæð1389 mm

Mercedes-Benz CLS er lúxusbifreið framleidd af þýska bifreiðaframleiðandanum Mercedes-Benz í Sindelfingen í Þýskalandi og Mercedes-Benz-Valdez verksmiðjunni í Santiago Tianguistenco í Mexíkó. Mercedes-Benz CLS er byggður á W211-grunninum sem E-týpan er einnig byggð á. CLS-týpan var fyrst sett á markað í Evrópu haustið 2004.

Vélar

Eftirfarandi vélar voru í boði fyrir 2007 árgerðina:

  • CLS 350 — 3,5 lítra V6-strokka vél (272 hestöfl/200 kW).
  • CLS 500 (CLS 550 á Bandaríkjamarkaði) — 5,5 lítra V8-strokka vél (382 hestöfl/281 kW).
  • CLS 63 AMG — 6,2 lítra V8-strokka vél (514 hestöfl/378 kW).
  • CLS 320 CDI — 3,0 lítra V6-strokka vél (224 hestöfl/167 kW) (Einungis á Evrópumarkaði).
  • CLS 350 CGI — 3,5 lítra V6-strokka vél (292 hestöfl/215 kW).

Myndasafn

Tenglar