Paul Benacerraf

Paul Benacerraf (f. 26. mars 1930, d. 13. janúar 2025) var bandarískur heimspekingur og prófessor við Princeton University. Hann kenndi við Princeton um nokkurra áratuga skeið.

Benacerraf fæddist í París í Frakklandi. Foreldrar hans voru gyðingar frá Marokkó. Bróðir Benacerrafs er venesúelski Nóbelsverðlaunahafinn og ónæmisfræðingurinn Baruj Benacerraf.

Benacerraf fékkst einkum við stærðfræðilega rökfræði og heimspeki stærðfræðinnar. Hann var ef til vill þekktastur fyrir grein sína „What numbers could not be“ og fyrir vinsælt greinasafn um heimspeki stærðfræðinnar, sem hann ritstýrði ásamt Hilary Putnam.

Benacerraf lést 13. janúar 2025, 94 ára að aldri.

Heimild

  Þessi heimspekigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.