Rósa Guðbjartsdóttir
Rósa Guðbjartsdóttir (RGuðb) | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() | |||||||
Bæjarstjóri Hafnarfjarðar | |||||||
Í embætti 21. júní 2018 – 1. janúar 2025 | |||||||
Forveri | Haraldur L. Haraldsson | ||||||
Eftirmaður | Valdimar Víðisson | ||||||
Alþingismaður | |||||||
| |||||||
Bæjarfulltrúi í Hafnarfirði | |||||||
| |||||||
Persónulegar upplýsingar | |||||||
Fædd | 29. nóvember 1965 | ||||||
Stjórnmálaflokkur | Sjálfstæðisflokkurinn | ||||||
Maki | Jónas Sigurgeirsson | ||||||
Börn | 4 | ||||||
Menntun | Stjórnmálafræði | ||||||
Háskóli | Háskóli Íslands | ||||||
Æviágrip á vef Alþingis |
Rósa Guðbjartsdóttir (f. 29. nóvember 1965) er íslenskur stjórnmálafræðingur sem að hefur sitið á Alþingi frá árinu 2024 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var bæjarstjóri Hafnarfjarðar frá 2018 til 2025.
Rósa er uppalin í Hafnarfirði, lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla og BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún starfaði lengi sem fréttamaður hjá Stöð 2 og Bylgjunni og var framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna frá 2001-2006. Rósa var varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi 2007-2009[1], hefur setið í bæjarstjórn Hafnarfjarðar frá árinu 2006 og verið bæjarstjóri Hafnarfjarðar frá 2018.[2] Rósa lét af embætti bæjarstjóra áramótin 2025 og Valdimar Víðisson tók þá við af henni. Rósa var kjörin á Alþingi í Alþingiskosningunum 2024. Til stóð að Rósa myndi taka við embætti formanns bæjarráðs af Valdimar Víðissyni þegar hann tæki við af henni sem bæjarstjóri en það breyttist þar sem Rósa tók sæti á Alþingi.
Tilvísanir
- ↑ Alþingi, Æviágrip - Rósa Guðbjartsdóttir (skoðað 7. september 2019)
- ↑ Hafnarfjordur.is, „Rósa Guðbjartsdóttir nýr bæjarstjóri“ Geymt 1 október 2020 í Wayback Machine (skoðað 7. september 2019)