Saara Kuugongelwa

Saara Kuugongelwa
Saara Kuugongelwa árið 2020.
Forsætisráðherra Namibíu
Núverandi
Tók við embætti
21. mars 2015
ForsetiHage Geingob
Nangolo Mbumba
ForveriHage Geingob
Persónulegar upplýsingar
Fædd12. október 1967 (1967-10-12) (57 ára)
Otamanzi, Suðvestur-Afríku (nú Namibíu)
ÞjóðerniNamibísk
StjórnmálaflokkurSWAPO
HáskóliLincoln-háskóli

Saara Kuugongelwa-Amadhila (f. 12. október 1967) er namibísk stjórnmálakona sem hefur verið forsætisráðherra Namibíu frá árinu 2015. Hún er meðlimur í Alþýðusamtökum Suðvestur-Afríku (SWAPO) og hefur átt sæti á namibíska þinginu frá árinu 1995. Hún var fjármálaráðherra landsins frá 2003 til 2015.[1] Kuugongelwa er fyrsti kvenforsætisráðherra Namibíu.

Kuugongelwa er með heiðursdoktorsgráðu í opinberum fjármálum og MSC-gráðu í fjármálahagfræði. Hún var hagfræðingur hjá namibíska forsetaembættinu árið 1995 og framkvæmdastjóri ríkisáætlananefndar frá 1995 til 2003.[2]

Æska og menntun

Saara Kuugongelwa fæddist 12. október 1967 í Otamanzi í Suðvestur-Afríku (nú Namibíu). Hún fór í útlegð ásamt öðrum meðlimum SWAPO árið 1980 þegar hún var þrettán ára og hélt til Síerra Leóne árið 1982, aðeins 15 ára gömul.[3] Hún gekk í stúlknaskólann í Koidu frá 1982 til 1984 og í Framhaldsskóla Heilags Jósefs frá 1984 til 1987. Frá 1991 til 1994 gekk hún í Lincoln-háskóla í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum og útskrifaðist með MSc-gráðu í fjármálahagfræði.[4][5]

Stjórnmálaferill

Kuugongelwa-Amadhila sneri heim til Namibíu eftir útskrift hennar úr Lincoln-háskóla og var ráðin sem hagfræðingur hjá skrifstofu forsetaembættisins í stjórnartíð Sams Nujoma. Árið 1995, eftir aðeins fáeina mánuði í því starfi og þegar hún var 27 ára, útnefndi Nujoma hana í sæti á namibíska þinginu og skipaði hana framkvæmdastjóra ríkisáætlananefndar Namibíu,[4] sem er embætti með tignarstöðu ráðherra. Árið 2003 hækkaði Nujoma hana í tign og gerði hana fjármálaráðherra.[6][7]

Þegar Hage Geingob varð forseti Namibíu þann 21. mars 2015 tók Kuugongelwa við embætti forsætisráðherra Namibíu.[8] Hún er fyrsta konan sem gegnir því embætti.[6]

Í maí 2016 tók hún þátt í málþingi undir heitinu „Spjall við hina heiðvirðu Söru Kuugongelwa-Amadhila, forsætisráðherra Lýðveldisins Namibíu“ á vegum Wilson-miðstöðvarinnar.[9] Hún hefur oft tjáð sig um jafnrétti kynjanna, meðal annars í heimsókn malíska forsætisráðherrans Modibo Keita til Namibíu og í ræðu (sem lesin var af Christine Hoebes í nafni hennar) þar sem hún lýsti því yfir að það myndi taka 70 ár að uppræta kynbundinn launamun í Afríku.[10][11]

Einkahagir

Kuugongelwa er gift viðskiptamanninum Onesmus Tobias Amadhila.[7]

Tilvísanir

  1. „Kuugongelwa-Amadhila, Saara“. Namibian Parliament (bandarísk enska). Sótt 24 febrúar 2023.
  2. „Saara Kuugongelwa-Amadhila“. World Economic Forum (enska). Sótt 24 febrúar 2023.
  3. „THE PRIME MINISTER OF REPUBLIC OF NAMIBIA“. OPM.gov.na. Afrit af upprunalegu geymt þann 6 júlí 2018. Sótt 6 febrúar 2017.
  4. 4,0 4,1 Graham Hopwood:Who's Who, Kuugongelwa-Amadhila, Saara - Swapo Namibian Institute for Democracy Geymt 11 júní 2011 í Wayback Machine
  5. „Kuugongelwa-Amadhila, Saara“. Ríkisstjórn Namibíu. Sótt 19 júní 2022.
  6. 6,0 6,1 „Profile: Saara Kuugongelwa-Amadhila“. New Era. 12. mars 2015. Afrit af upprunalegu geymt þann 4. mars 2016. Sótt 9 júlí 2016.
  7. 7,0 7,1 Mongudhi, Tileni; Smith, Sonja (17 júní 2022). „Kuugongelwa-Amadhila eyes presidential throne“. The Namibian. bls. 1, 6. Afrit af upprunalegu geymt þann 4. mars 2016. Sótt 9 júlí 2016.
  8. Shinovene Immanuel and Theresia Tjihenuna, "Emotional transition" Geymt 18 október 2022 í Wayback Machine, The Namibian, 23. mars 2015.
  9. „A Conversation with The Right Honourable Saara Kuugongelwa-Amadhila, Prime Minister of the Republic of Namibia“. WilsonCenter.org. Sótt 6 febrúar 2017.
  10. „Gender equity vital to sustained growth“. Namibia Economist. 19 ágúst 2016.
  11. Kahiurika, Ndanki (15 ágúst 2016). „70 years to close gender gap – PM“. The Namibian. bls. 1.


Fyrirrennari:
Hage Geingob
Forsætisráðherra Namibíu
(20. mars 2015 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti