Stúdentspróf

Með stúdentsprófi lýkur því námi á framhaldsskólastigi sem ætlað er að veita undirbúning fyrir nám á háskólastigi. Námstími til stúdentsprófs á Íslandi er þrjú ár eftir lok grunnskóla, áður var námstíminn fjögur ár. Í framhaldsskólum með áfangakerfi geta nemendur stjórnað námshraða.
Á hinum Norðurlöndunum er stúdentsprófið yfirleitt líka tekið eftir þriggja ára nám eftir skyldunám.
Stúdentspróf veitir rétt til inngöngu í háskóla. Það rekur uppruna sinn til inntökuprófs, Examen artium, sem tekið var við viðkomandi háskóla til 1850 þegar prófin færðust til menntaskólanna.