Tagus
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/56/SpainTajoBasin.png/220px-SpainTajoBasin.png)
Tagus (latína: Tagus, spænska: Tajo, portúgalska: Tejo) er stærsta á Íberíuskagans. Áin er 1.038 km að lengd, þar af eru 716 kílómetrar á Spáni, 47 kílómetrar hennar þjóna sem landamæri landanna tveggja og þeir 275 kílómetrar sem eftir standa eru í Portúgal.
Upptök Tagus árinnar eru í Fuente de García, í Albarracín fjöllunum og hún mætir hafi í Lissabon.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Tagus.