Veiðihundarnir
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/41/Canes_Venatici_constellation_map.png/220px-Canes_Venatici_constellation_map.png)
Veiðihundarnir (latína: Canes venatici) er lítið stjörnumerki á norðurhimninum sem var fyrst lýst af Johannesi Hevelius á 17. öld. Hundarnir tveir heita Chara og Asterion sem Hjarðmaðurinn hefur í bandi. Bjartasta stjarna merkisins er Cor Caroli (α² CVn) sem Edmund Halley nefndi í höfuðið á Karli 1. eða syni hans Karli 2.. Hún hefur birtustigið 2,9.