Windows 98
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b7/Microsoft_Windows_98_logo_with_wordmark.svg/250px-Microsoft_Windows_98_logo_with_wordmark.svg.png)
Windows 98 er stýrikerfi, sem er ekki lengur stutt, með myndrænu viðmóti sem þróað var af Microsoft. Það var næsta útgáfan af Windows á eftir Windows 95. Það var gefið út til tölvuframleiðenda 15. maí 1998 og til almennings 25. júní 1998. Það tilheyrir Windows 9x-stýrikerfafjölskyldunni. Eins og undanfari þess er Windows 98 blandað 16- og 32-bita stýrikerfi og ræsingarferlið byggir á MS-DOS.
Windows 98 var leyst af hólmi af Windows 98 Second Edition (SE) sem kom út 5. maí 1999. Þar á eftir kom út Windows ME 14. september 2000. Vinnuheiti Windows 98 var Memphis.
Heimild
- Fyrirmynd greinarinnar var „Windows 98“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 25. júní 2019.