Akabaflói
Akabaflói er stór flói í Rauðahafi á milli Sínaískaga og Arabíuskaga. Lönd sem eiga strandlengju að Akabaflóa eru Egyptaland, Ísrael, Jórdanía og Sádi-Arabía. Flóinn er 24 km breiður þar sem hann er breiðastur og 160 km langur. Við norðurenda flóans eru borgirnar Taba í Egyptalandi, Elíat í Ísrael og Akaba í Jórdaníu.
Jarðfræðilega er Akabaflói hluti af Sigdalnum mikla.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Akabaflóa.