Hippasos

Hippasos frá Metapontum, fæddur um 500 f.Kr. í Grikklandi hinu mikla var forngrískur heimspekingur. Hann er sá nemandi Pýþagórasar sem er talinn hafa uppgötvað að ferningsrótin af 2 er óræð tala. Þetta uppgötvaði Hippasos í miðri siglingu en hinir pýþagóringarnir köstuðu honum fyrir borð því þeir vildu ekki trúa að þessi mikilvæga tala gæti verið annað en hlutfall heilla talna.

Hans er einnig minnst fyrir tilraunir sínar á hljómburði og bergmáli. Lítið er varðveitt af ritverkum hans.

Tengt efni

  • Pýþagóringar

Heimild

  Þessi fornfræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  Þessi heimspekigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.