Jón Daði Böðvarsson
Jón Daði Böðvarsson | ||
![]() | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Jón Daði Böðvarsson | |
Fæðingardagur | 25. maí 1992 | |
Fæðingarstaður | Selfoss, Ísland | |
Hæð | 1.90cm | |
Leikstaða | Framherji/Vængmaður | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | Burton Albion | |
Númer | 15 | |
Yngriflokkaferill | ||
![]() | ||
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2008-2012 | ![]() |
80 (18) |
2013-2015 | ![]() |
81 (15) |
2016 | ![]() |
9 (2) |
2016-2017 | Wolverhampton Wanderers | 42 (3) |
2017-2019 | Reading F.C. | 53 (14) |
2019-2022 | Millwall F.C. | 65 (5) |
2022-2024 | Bolton Wanderers | 78 (14) |
Landsliðsferill | ||
2009-10 2011-14 2012-2022 |
Ísland U19 Ísland U21 Ísland |
7 (1) 12 (2) 64 (4) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Jón Daði Böðvarsson (f. 25. maí 1992) er íslenskur atvinnumaður í knattspyrnu sem spilaði síðast fyrir enska liðið Burton Albion.
Jón hóf knattspyrnuferilinn sinn hjá uppeldisfélagi sínu UMF Selfoss þaðan hélt hann svo til norska liðsins Viking FK árið 2013. Hann var hluti af íslenska A-landsliðinu sem vann sér sæti á lokakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu 2016 í fyrsta skipti í sögu karlalandsliðsins. Hann er barnabarn skáldsins Þorsteins frá Hamri.
Knattspyrnuferill
2008-12: Selfoss
Fyrsti leikur Jóns Daða fyrir meistaraflokkslið UMF Selfoss var þann 2. júní 2008 í 4-1 bikarsigri á Skallagrími. Jón Daði, sem þá var aðeins 16 ára, kom inn á sem varamaður á 52. mínútu.[1]
2017-2019: Reading FC
Sumarið 2017 fór Jón til Reading frá Wolverhampton Wanderers. Hann skoraði sína fyrstu þrennu í bikarleik í janúar 2018. Jón varð markahæstur fyrir liðið tímabilið 2017-2018.
Millwall
Sumarið 2019 gekk Jón Daði til liðs við Millwall FC í Austur-Lundúnum. Hann var settur út úr liðinu 2021-2022 hjá nýjum þjálfara og yfirgaf félagið.
Bolton Wanderers
Í janúar 2022 gekk Jón til liðs við Bolton Wanderers.
Tilvísanir
- ↑ „VISA-bikar karla Skallagrímur 1-4 Selfoss“. KSÍ. Sótt 7. apríl 2016.