Khalil Gibran

Khalil Gibran

Gibran Khalil Gibran (6. janúar 188310. apríl 1931) (arabíska: جبران خليل جبران ) var líbanskt skáld, heimspekingur og myndlistarmaður.

Hann fæddist í grennd við Líbanonsfjall en fluttist til New York á ungum aldri. Hann var mjög trúaður alla tíð, en hann fæddist inn í kristinn söfnuð maroníta og mótaði trú hans á Jesú Krist allan skáldskap hans.

Í Bsharri, sem er í 1450 m hæð á brún Kadisha dals eða gljúfurs, er nú minningarsafn um Khalil Gibran.

Ritverk

  • The Madman
  • The Forerunner
  • Sand and Foam
  • The Earth Gods
  • The Wanderer
  • The Garden of the Prophet
  • Prose Poems
  • Nymphs of the Valley
  • A Tear and a Smile
  • The Broken Wings
  • The Voice of the Master
  • The Prophet - Þýdd af Gunnari Dal yfir á íslensku sem Spámaðurinn
  • Jesus, the Son of Man - Þýdd af Gunnari Dal yfir á íslensku sem Mannssonurinn

Tilvitnun

  • „Í fjöru fór ég og ritaði visku mína í sandinn, og gaf því alla mína orku og dyggð. Í flóði sneri ég aftur til þess að bera visku mína augum, en fann þar aðeins fávísi mína.“

Heimildir

  • Gunnar Dal, Mannssonurinn, 2. útgáfa 1991, 1986; bls 301-302.