Laxfoss (Norðurá)

Laxfoss.

Laxfoss er foss í Norðurá í Borgarbyggð. Hann er 2,5 km sunnan við fossinn Glanna. Við hann er mikil laxagengd. Komast má að Laxfossi eftir afleggjara frá frá hringveginum og einnig má ganga þangað frá fossinum Glanna og Munaðarnesi. Þar í grendinni finnast plöntusteingervingar og surtarbrandur.[1][2]

Nálægt bænum er eyðibýlið Laxfoss, sem fór í eyði árið 1981 og var síðasti bærinn sem fór í eyði í Ystu-Tungu. Húsið er í uppgerð og er nú notað sem sumarhús.[2][1]

Heimildir

  1. 1,0 1,1 Þorsteinn Jósepsson, Steindór Steindórsson og Páll Líndal (1982). Landið þitt Ísland, A-G. Örn og Örlygur.
  2. 2,0 2,1 Björn Hróarsson (1994). Á ferð um landið, Borgarfjörður og Mýrar. Mál og menning. ISBN 9979-3-0657-2.