Múlagöng

Ólafsfjarðargöng eða Múlagöng eru 3,4 km einbreið veggöng gegn um Ólafsfjarðarmúla sem voru tekin í notkun í desember 1990 og vígð 1. mars 1991. Þau leystu af hólmi Múlaveginn, ótryggan veg fyrir Múlann og tengja saman Dalvík og Ólafsfjörð yst á Tröllaskaga. Skömmu fyrir opnun Ólafsfjarðarganga samþykkti Alþingi að ráðast í gerð jarðganga sem myndu tengja Siglufjörð og Ólafsfjörð. Framkvæmdir við Héðinsfjarðargöng hófust árið 2006.
Rétt suður af göngunum er fossinn Mígandi.
Múlagöng eru fjórðu elstu göng á Íslandi, á eftir Oddskarðsgöngum (1977), Strákagöngum (1967) og Arnarnesgöngum (1947).