Mapútó

Mapútó (portúgalska: Maputo) er höfuðborg og stærsta borg Mósambík. Borgin er hafnarborg og byggist efnahagur hennar aðallega í kringum höfnina. Samkvæmt opinberum tölum frá árinu 2007 búa þar 1.094.315 manns, en talið er að þar búi í raun mun fleiri. Borgin var látin heita eftir herra Maputsu I foringja Tembe ættflokksins.