Olía
Olía er almennt heiti á hvers kyns lífrænum vökva sem ekki blandast vatni.
Olía er annars vegar þau kolvetni sem finnast í jörðu og eru fljótandi við herbergishita og afurðir unnar úr þeim og hins vegar ýmis tríglyseríð sem eru vökvar við herbergishita, unnin úr plöntum og dýrum (til dæmis ólífuolía og lýsi). Ástæðan fyrir því að þessir tveir flokkar efna eru báðir nefndir olíur er sögulegs eðlis.
Orðsifjar
Úr jarðlegnum dýraleifum
Orðið „olía“ í þegar átt er við vökva úr jarðlegnum dýraleifum er líklega tökuorð úr danska orðinu olje sem kemur líklega úr latnesku orðunum oleum („olía“), olīvum („ólífuolía“).[1]
Fituefni úr ólífum
Orðið „olía“ í þegar átt er við fljótandi fituefni úr ólífum er líklega tökuorð úr miðlágþýska orðinu olie sem kom úr latnesku orðunum oleum („olía“), olīvum („ólífuolía“).[1]
Ýmsar tegundir olíu
- Matarolía
- Ilmolía
- Gírolía
- Fiskiolía
- Hitunarolía
- Jarðolía
- Mótórolía
- Málningarolía
- Hráolía
- Magaolía
- Gerviolía
- Fylgiolía
- Grænmetisolía
Tengt efni
- Olea
- Oleum
Neðanmálsgreinar
- ↑ 1,0 1,1 Ásgeir Blöndal Magnússon (3. prentun mars 2008). Íslensk orðsifjabók. Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. ISBN 978-9979-654-01-8. á blaðsíðu 689 undir „olía“.