1412

Ár

1409 1410 141114121413 1414 1415

Áratugir

1401–14101411–14201421–1430

Aldir

14. öldin15. öldin16. öldin

Eiríkur af Pommern.

Árið 1412 (MCDXII í rómverskum tölum)

Á Íslandi

  • 13. apríl - Yfir tuttugu bátar fórust við Ísland í miklu illviðri.
  • Fyrst getið um enskt fiskiskip í íslenskum annálum sem markar upphafið að skipulegri sókn enskra fiskiskipa á Íslandsmið næstu aldirnar. „Kom skipið af Englandi austur fyrir Dyrhólaey, var róið til þeirra og voru fiskimenn út af Englandi. Þetta sama haust urðu 5 menn af enskum fráskila sínum kompánum og gengu í land austur við Horn úr báti og létust vilja kaupa sér mat og sögðust hafa soltið í bátnum mörg dægur. Voru þessir 5 enskir menn hér á landi um veturinn", segir í Nýja annál.
  • Ekkert skip kom frá Noregi til Íslands þetta ár.

Fædd

Dáin

  • 12. maí - Einar Herjólfsson, farmaður, var veginn í kirkjugarðinum á Skúmsstöðum.

Erlendis

  • Jóhann 2. Kastilíukonungur setti lög sem takmörkuðu réttindi gyðinga. Þeir áttu meðal annars að klæðast sérstökum fatnaði og máttu ekki gegna opinberum embættum.
  • Eiríkur af Pommern fékk formlega ríkisvald yfir Norðurlöndum í hendur þótt hann hefði verið konungur að nafninu til í Noregi frá 1389 og Danmörku og Svíþjóð frá 1396.

Fædd

Dáin