Bróm (grískabromos, sem þýðir „ódaunn“), er frumefni með efnatákniðBr og er númer 35 í lotukerfinu. Bróm er rauður, rokgjarn halógenvökvi við stofuhitastig sem að hefur hvarfgirni mitt á milli klórs og joðs. Þetta efni er skaðlegt lífrænum vefjum og gufa þess ertir augu og kverkar.