Norðurárdalur (Borgarfirði)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/a/a2/Norduradalur.jpg/220px-Norduradalur.jpg)
Norðurárdalur er dalur í Borgarbyggð norðan við Stafholtstungur og nær að Holtavörðuheiði. Þjóðvegur 1 liggur um dalinn og Norðurá rennur um hann. Í dalnum hefur myndast þéttbýli í kringum háskólann á Bifröst og búa þar um 250 manns.
Dalurinn var áður sérstakur hreppur, Norðurárdalshreppur en þann 11. júní 1994 varð hreppurinn hluti af Borgarbyggð.
Bæir
Vestan megin
- Fornihvammur (fór í eyði 1974)
- Sveinatunga (í eyði, húsi haldið við)
- Hvammur (í byggð)
- Dýrastaðir (í byggð)
- Hreimsstaðir (í eyði, húsi haldið við)
- Klettstía (í byggð)
- Dalsmynni (í byggð)
- Hvassafell (í byggð)
- Hraunsnef (í byggð)
- Brekka (í byggð)
- Hraunbær (í byggð)
- Jafnaskarð (fór í eyði 1968, núna notað sem sumarhús)
- Laxfoss (í eyði, húsi haldið við)
- Litlaskarð (í eyði)
- Grafarkot (í eyði)
- Stóra Gröf (í eyði)
- Stóru Skógar (í eyði)
- Litlu Skógar (í eyði)
Austan megin
- Krókur (í byggð)
- Háreksstaðir (í eyði)
- Hóll (í byggð)
- Hafþórsstaðir (í byggð)
- Skarðshamrar (í byggð)
- Glitstaðir (í byggð)
- Svartagil (í byggð)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d4/Noto_Emoji_KitKat_1f30e.svg/30px-Noto_Emoji_KitKat_1f30e.svg.png)