Belís

Belize
Fáni Belís Skjaldarmerki Belís
Fáni Skjaldarmerki
Kjörorð:
Sub Umbra Floreo
(latína: Ég blómstra í skugganum)
Þjóðsöngur:
Land of the Free
Staðsetning Belís
Höfuðborg Belmópan
Opinbert tungumál enska
Stjórnarfar Þingbundin konungsstjórn

Konungur Karl 3.
Landstjóri Froyla Tzalam
Forsætisráðherra Johnny Briceño
Sjálfstæði frá Bretlandi
 • Heimastjórn 1964 
 • Sjálfstæði 21. desember 1981 
Flatarmál
 • Samtals
 • Vatn (%)
147. sæti
22.966 km²
0,8
Mannfjöldi
 • Samtals (2019)
 • Þéttleiki byggðar
169. sæti
408.487
17,2/km²
VLF (KMJ) áætl. 2019
 • Samtals 3,484 millj. dala (166. sæti)
 • Á mann 8.576 dalir (118. sæti)
VÞL (2018) 0.720 (103. sæti)
Gjaldmiðill belísdalur (BZD)
Tímabelti UTC-6
Þjóðarlén .bz
Landsnúmer +501

Belís er land á austurströnd Mið-Ameríku við Karíbahaf, með landamæriMexíkó í norðvestri og Gvatemala í vestri og suðri. Það nær yfir 22.970 ferkílómetra og íbúar eru rúmlega 400.000. Meginlandshluti landsins er um 290 km langur og 110 km breiður. Belís er fámennasta og dreifbýlasta land Mið-Ameríku, en fólksfjölgun (áætluð 1,87% á ári 2018) er þar önnur mest í heimshlutanum og með því mesta á Vesturlöndum.

Menning Maja náði til Belís milli 1500 f.Kr. og 300 e.Kr. og blómstraði til um 1200. Fyrstu Evrópumennirnir komu árið 1502 þegar Kristófer Kólumbus sigldi inn í Hondúrasflóa. Landkönnun og landnám Evrópumanna hófust árið 1638. Á þeim tíma gerðu bæði Spánn og Bretland tilkall til landsins þar til Bretar sigruðu Spánverja í orrustunni um St. George's Caye undan ströndum landsins 1798. Nýlendan Breska Hondúras var stofnuð 1840 og varð krúnunýlenda árið 1862. Landið fékk sjálfstæði 1981.

Nafn landsins, og fyrri höfuðborgarinnar Belísborgar, er dregið af Belísá. Í Belís þrífst fjölbreytt menning og mörg tungumál. Enska er opinbert tungumál landsins en belískreólska er þjóðtunga þriðjungs íbúa. Spænska er annað mest talaða mál landsins. Innan Mið-Ameríku hefur Belís mikla sérstöðu og er skyldara ríkjum Karíbahafsins sem einnig eru fyrrum nýlendur Breta. Höfuðborg Belís er Belmópan en Belís er þéttbýlasta borgin og helsta hafnarborg landsins.

Vegna mikils tegundafjölda á landi og í sjó og fjölbreyttra vistkerfa leikur Belís lykilhlutverk í Mið-Ameríkurflökkureininni. Landið telst bæði til Mið-Ameríku og Karíbahafsins með sterk tengsl við bæði menningarsvæðin. Það er eina landið sem á fulla aðild að CARICOM, Samtökum ríkja í Rómönsku Ameríku og Karíbahafi og Samstarfskerfi Mið-Ameríku. Belís er samveldisland og Karl 3. er konungur og þjóðhöfðingi landsins.

Heiti

Elsta ritaða heimildin sem getur um orðið „Belís“ er dagbók dóminíkanamunksins José Delgado frá 1677.[1] Delgado skráði nöfn ánna sem hann fór yfir á ferð sinni norður eftir strönd Karíbahafsins sem Rio Soyte, Rio Xibum og Rio Balis. Nöfn ánna, sem samsvara Sittee-á, Sibun-á og Belísá, fékk hann frá túlki sínum.[1] Stungið hefur verið upp á því að „Balis“ sé Majaorðið belix (eða beliz) sem merkir drullugt vatn.[1] Nýlega hefur verið stungið upp á því að það gæti komið frá setningunni bel Itza eða „vegurinn til Itza“.[2]

Á 3. áratug 19. aldar komst sú alþýðuskýring á nafninu í umferð meðal yfirstétta Belís að heitið væri spænsk útgáfa nafns breska sjóræningjans Peter Wallace, sem hafi stofnað nýlendu við ósa Belísár 1638.[3] Engar heimildir eru til um stofnun sjóræningjanýlendu á því svæði og jafnvel Wallace sjálfur er talinn vera skáldsagnapersóna.[1][2] Sagnfræðingar og rithöfundar hafa komið með ýmsar aðrar skýringar á uppruna heitisins í gegnum tíðina, meðal annars að það sé úr afrískum málum eða frönsku.[1]

Stjórnmál

Stjórnsýslueiningar

Districts of Belize

Belís er skipt í sex umdæmi:

Umdæmi Höfuðstaður Landsvæði[4] Íbúar
(2015)[5]
Íbúar
(2010)[4]
Breyting Þéttleiki
(2015)
Belize Belísborg 4.310 km² 110.644 95.292 +16,1% 25.7/km²
Cayo San Ignacio 5.200 km² 87.876 75.046 +17,1% 16.9/km²
Corozal Corozal Town 1.860 km² 45.530 41.061 +10,9% 24.5/km²
Orange Walk Orange Walk Town 4.600 km² 49.466 45.946 +7,7% 10,7/km²
Stann Creek Dangriga 2.550 km² 39.865 34.324 +16,1% 15,6/km²
Toledo Punta Gorda 4.410 km² 34.928 30.785 +13,5% 7,9/km²

Umdæmin skiptast aftur í 31 kjördæmi. Staðbundin stjórnvöld í Belís eru á fjórum stjórnsýslustigum: borgarráð, bæjarráð, þorpsráð og byggðaráð. Tvö borgarráð (Belísborg og Belmópan) og sjö bæjarráð ná yfir þéttbýlisstaði landsins, meðan þorps- og byggðaráð eru yfir dreifbýli[6]

Íþróttir

Vinsælustu íþróttagreinarnar í Belís eru knattspyrna, körfuknattleikur, blak og hjólreiðar. Árviss víðavangskeppni í hjólreiðum, sem fram fer um páskahelgina, er kunnasti íþróttaviðburður landsins og laðar að sér fjölda útlendra keppenda.

Þótt knattspyrna sé sú íþrótt sem flestir landsmenn fylgjast með hefur Belís ekki unnið nein stórafrek á fótboltasviðinu. Landsliðið komst í úrslitakeppni Norður- og Miðameríkukeppninnar árið 2013 í fyrsta og eina sinn, en tapaði öllum sínum leikjum. Sama ár hafnaði liðið í fjórða sæti á Mið-Ameríkuleikunum sem er langbesti árangur landsins í keppninni.

Hondúras sendi fyrst íþróttafólk til keppni á Ólympíuleikunum á leikunum í Mexíkóborg 1968 og hefur tekið þátt í öllum leikum frá því í Los Angeles 1984. Enginn íþróttamaður frá Belís hefur enn komist á verðlaunapall á leikunum.

Tilvísanir

  1. 1,0 1,1 1,2 1,3 1,4 Twigg, Alan (2006). Understanding Belize: A Historical Guide. Madeira Park, BC: Harbour Publishing. bls. 9–10, 38–45. ISBN 978-1550173253.
  2. 2,0 2,1 Restall, Matthew (21. febrúar 2019). „Creating "Belize": The Mapping and Naming History of a Liminal Locale“. Terrae Incognitae. 51 (1): 5–35. doi:10.1080/00822884.2019.1573962.
  3. British Honduras. 1892. Sótt 25. október 2010.
  4. 4,0 4,1 „Belize Population and Housing Census 2010: Country Report“ (PDF). Statistical Institute of Belize. 2013. bls. 70. Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 27. janúar 2016. Sótt 14. maí 2016.
  5. „Mid-Year Population Estimates by Area and Sex 2008 - 2015“. Statistical Institute of Belize. Afrit af upprunalegu geymt þann 8. október 2017. Sótt 14. maí 2016.[óvirkur tengill]
  6. „Local Government“. Afrit af upprunalegu geymt þann 20. júlí 2011. Sótt 1. júní 2016.. Government of Belize. belize.gov.bz
  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.