Jafnaðarmannaflokkurinn (Svíþjóð)
Sænski Jafnaðarmannaflokkurinn Sveriges socialdemokratiska arbetareparti | |
---|---|
Formaður | Magdalena Andersson |
Aðalritari | Tobias Baudin |
Þingflokksformaður | Annelie Karlsson |
Stofnár | 1889 |
Höfuðstöðvar | Sveavägen 68, Stokkhólmi |
Stjórnmálaleg hugmyndafræði |
Jafnaðarstefna |
Einkennislitur | Rauður |
Sæti á ríkisþinginu | |
Sæti á Evrópuþinginu | |
Vefsíða | socialdemokraterna.se |
Sænski Jafnaðarmannaflokkurinn (s. Sveriges socialdemokratiska arbetareparti, SAP) er elsti starfandi stjórnmálaflokkur Svíþjóðar. Hann var stofnaður 1889. Flokkurinn býður sig fram í kosningum sem Verkalýðsflokkurinn-Jafnaðarmannaflokkurinn (s. Arbetarepartiet-Socialdemokraterna). Fylgi flokksins hefur farið dvínandi á síðustu árum en í síðustu kosningum fékk hann rétt tæp 30% atkvæða. Á eftirstríðsárunum var flokkurinn lengst af með 40-50% fylgi en mest fylgi í kosningum hlaut flokkurinn 1940, 53,8%.
Formenn sænska Jafnaðarmannaflokksins
- Claes Tholin 1896–1907
- Hjalmar Branting 1907–1925
- Per Albin Hansson 1925–1946
- Tage Erlander 1946–1969
- Olof Palme 1969–1986
- Ingvar Carlsson 1986–1996
- Göran Persson 1996–2007
- Mona Sahlin 2007–2011
- Håkan Juholt 2011–2012
- Stefan Löfven 2012–2021
- Magdalena Andersson frá 2021