Scipio Aemilianus
- Þessi grein fjallar um rómverska herforingjann sem lagði Karþagó í eyði í þriðja púnverska stríðinu. Um aðra menn með sama nafni sjá Scipio.
Publius Cornelius Scipio Aemilianus Africanus Numantinus, stundum nefndur Scipio Africanus yngri (185-129 f.Kr.) var herforingi og stjórnmálamaður í Rómaveldi. Sem ræðismaður stjórnaði hann umsátrinu um og eyðileggingu Karþagó í þriðja púnverska stríðinu árið 146 f.Kr. Hann var síðar leiðtogi andstöðunnar við Gracchusarbræðrum árið 133 f.Kr.
Hann var yngri sonur Luciusar Aemiliusar Paullusar Macedonicusar, sem hafði sigrað Makedóníu. Hann barðist í herliði föður síns í orrustunni við Pydna 17 ára gamall. Hann var síðar ættleiddur af Publiusi Corneliusi Scipio, elsta syni Publiusar Corneliusar Scipios Africanusar og nafni hans var breytt í Publius Cornelius Scipio Aemilianus.
Heimild
- Fyrirmynd greinarinnar var „Scipio Aemilianus Africanus“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 9. ágúst 2006.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/db/Homeros_Caetani_Louvre_Ma440_n2.jpg/20px-Homeros_Caetani_Louvre_Ma440_n2.jpg)