Rabindranath Tagore
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/91/Rabindranath_Tagore_in_1909.jpg/250px-Rabindranath_Tagore_in_1909.jpg)
Rabindranath Tagore (bengalska: রবীন্দ্রনাথ ঠাকুর, 7. maí 1861 – 7. ágúst 1941) var bengalskt skáld, rithöfundur, tónlistarmaður og myndlistarmaður sem hafði gríðarlega mikil áhrif á bengalskar bókmenntir og tónlist. Hans frægasta verk var Gitanjali og fyrir það hlaut hann bókmenntaverðlaun Nóbels árið 1913, fyrstur höfunda utan Evrópu.
Nokkrar bækur eftir Tagore hafa komið út í íslenskri þýðingu. Ljóðfórnir (Gitanjali) kom út 1919 og Farfuglar 1922, báðar þýddar af Magnúsi Á. Árnasyni. Árið 1961 kom út bókin Skáld ástarinnar: endurminningar, ljóð, leikrit, erindi, þýdd af Sveini Víkingi, og árið 1964 kom út ljóðabókin Móðir og barn í þýðingu Gunnars Dal.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/84/Oxygen480-apps-system-users.svg/30px-Oxygen480-apps-system-users.svg.png)