2. október

SepOktóberNóv
SuÞrMiFiLa
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031
2025
Allir dagar


2. október er 275. dagur ársins (276. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 90 dagar eru eftir af árinu.

Atburðir

  • 829 - Teófílos keisari tók við völdum í Konstantínópel.
  • 959 - Játgeir friðsami var krýndur Englandskonungur.
  • 1187 - Konungsríkið Jerúsalem gafst upp fyrir her Saladíns.
  • 1263 - Alexander 3. Skotakonungur sigraði flota Hákonar gamla í orrustunni við Largs.
  • 1535 - Jacques Cartier uppgötvaði Montréal í Québec.
  • 1601 - Umsátrið um Kinsale hófst á Írlandi. Ósigur Íra þar leiddi til þess að Elísabet 1. gat lagt allt Írland undir sig.
  • 1608 - Hollenski linsusmiðurinn Hans Lippershey sýndi fyrsta sjónaukann í hollenska þinginu.
  • 1786 - Oddur Gíslason prestur á Miklabæ hvarf á leið heim að bæ sínum og var afturgöngunni Miklabæjar-Solveigu kennt um og sagt að hún hefði dregið prestinn í gröf sína. Lík hans fannst raunar ári síðar í læk skammt frá Miklabæ.
  • 1801 - Konungur úrskurðaði að Ísland skyldi allt verða að einu biskupsdæmi og var þá biskupsstóllinn á Hólum lagður niður.
  • 1847 - Prestaskólinn tók til starfa í Reykjavík. Hann var í fyrstu til húsa í húsi Lærða skólans.
  • 1887 - Góðtemplarahús Reykjavíkur var vígt.
  • 1906 - Dagblaðið kom út í Reykjavík í fyrsta sinn. Það kom út daglega í þrjá mánuði.
  • 1934 - Ólafur Thors tók við formannsembætti í Sjálfstæðisflokknum.
  • 1940 - Áfengisskömmtun var tekin upp á Íslandi og var skammtur karlmanns 4 hálfflöskur á mánuði af sterkum drykkjum en kvenna helmingur þess.
  • 1958 - Gínea fékk sjálfstæði frá Frakklandi.
  • 1960 - Ísafjarðarflugvöllur var tekinn í notkun.
  • 1964 - Tækniskóli Íslands var settur í fyrsta sinn.
  • 1972 - Danir samþykktu inngöngu í ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu. Færeyjar ákváðu að standa utan sambandsins.
  • 1981 - Breska hljómsveitin The Police gaf út breiðskífuna Ghost in the Machine.
  • 1992 - Vígð var 120 metra löng brú yfir Dýrafjörð. Við það styttist leiðin á milli Þingeyrar og Ísafjarðar um 13 kílómetra.
  • 1992 - Blóðbaðið í Carandiru hófst með uppþotum í Carandiru-fangelsinu í São Paulo í Brasilíu.
  • 1996 - Andrej Lúkanov, fyrrum forsætisráðherra Búlgaríu, var myrtur.
  • 1996 - Aeroperú flug 603 hrapaði í Kyrrahafið þegar öll tæki um borð biluðu skömmu eftir flugtak frá Límaflugvelli í Perú. Allir um borð, 70 að tölu, fórust.
  • 1997 - Mikið hneykslismál kom upp þegar í ljós kom að þéttiefni sem notað var í Hallandsås-göngunum í Svíþjóð gaf frá sér eiturefni sem barst í grunnvatn.
  • 1999 - Slysavarnafélagið Landsbjörg var stofnað á Íslandi.
  • 2001 - Svissneska flugfélagið Swissair hætti öllu flugi.
  • 2006 - Byssumaður tók fimm stúlkur á aldrinum 7-13 ára í gíslingu í West Nickel Mines School í Pennsylvaníu, myrti þær og framdi síðan sjálfsmorð.
  • 2007 - Sjónvarpsstöðin ÍNN tók til starfa á Íslandi.
  • 2007 - Annar leiðtogafundur Suður- og Norður-Kóreu frá Kóreustríðinu átti sér stað.
  • 2009 - Önnur þjóðaratkvæðagreiðsla um breyttan Lissabonsáttmála var haldin á Írlandi. Sáttmálinn var samþykktur í þetta sinn.
  • 2010 - Héðinsfjarðargöng, milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar annars vegar og Héðinsfjarðar og Ólafsfjarðar hins vegar, voru vígð.
  • 2013 - Bandaríska alríkislögreglan lokaði vefsíðunni Silk Road.
  • 2016 - Friðarsamkomulag milli ríkisstjórnar Kólumbíu og skæruliða FARC var fellt í þjóðaratkvæðagreiðslu.
  • 2018 - Sádiarabíski blaðamaðurinn Jamal Khashoggi var myrtur í ræðismannsskrifstofu Sáda í Istanbúl, Tyrklandi.
  • 2020 - Opinbera hlutafélagið Betri samgöngur var stofnað á Íslandi.
  • 2020 - Donald Trump Bandaríkjaforseti greindist með Covid-19.
  • 2023 - Katalin Karikó og Drew Weissman fengu nóbelsverðlaun í læknisfræði vegna þróunar RNA-bóluefnis gegn kórónaveirunni.

Fædd

Dáin